Aldrei aftur.....

....skal ég fara á semi blind date.
Ég fór einmitt á eitt slíkt í gær.... það byrjaði nú eiginlega á því að hann sagði við mig í gær:
"ég verð komin heim um átta og bjalla þá í þig með staðsetningu"
hugsaði bara hey ekki málið.... svo um klukkan átta fæ ég sms sem segir: "komdu bara heim til mín" og heimilisfangið fylgdi.
Já ég hugsaði nú bara ég er ekki alveg svo heimsk að ég færi bara heim til einhvers ókunnugs manns en ég sendi sms til baka og bauð honum í göngutúr.
Sem betur fer gerði ég það en stakk ekki uppá einhverju kaffihúsi þar sem ég hefði þurft að þola fíflið lengur en ég gerði...
Allavega þá skipti ég náttlega um föt fjórtán sinnum og dreif mig út til að hitta gæjann, man að ég hugsaði svo á leiðinni....fjandinn ég gleymdi að sprauta á mig ilmvatni.
Þegar ég hitti svo gaurinn þá heilsumst við og byrjum að ganga og spjalla, á augabragði hugsa ég jæja mamma hans hlýtur að hafa klætt hann en ákveð nú að gefa honum séns, kannski á hann bara umhyggjusama móðir. Eftir augnablik (úti í roki by the by) þá fatta ég að mér er rosalega illt í nefinu og stafar það af því að gaurinn hefur gjörsamlega baðað sig upp úr rakspíranum áður en hann fór út.....
..... ennþá ca. 24 tímum síðar hljómar þessi óskaplega leiðinlega rödd í eyrunum á mér.... blaðrandi stanslaust um ekki neitt.... tók hann allavega 5 mínútur að klára setningu því hann sagði alltaf fimmtán já já inná milli allra setninga.
Þannig að það sem ég komst að um hann eftir að hafa spjalla við hann í ca. hálftíma var hvað hann var með í laun, hvað visareikningurinn hans var hár þennan mánuðinn, hvað hann þarf að borga mikið í leigu og hvað leigann hefur hækkað mikið síðan að vinur hans flutti út.
interesting.... úff.... allavega þá endist þetta "deit" í rúman hálftíma þar til ég meika ekki meira og sting uppá því að við höfum þetta bara stutt...kveð og kenni chemistry dæminu um að ég vilji ekki að hitta hann aftur (er reyndar alveg satt) ég meina hvernig getur maður sagt einhverjum "þú ert bara svo ógeðslega leiðinlegur og óaðlaðandi að ég vil ekki hitta þig aftur, skiptu um persónuleika, hentu rakspíranum og hringdu svo!"
Ég er nú samt með smá hugmynd sem ég er kannski að hugsa um að láta loks verða að veruleika eftir að hafa spjallað oft um þetta á djamminu við einhleypu vinkonurnar.
Singles partý á einhverjum skemmtistað í bænum, single fólki er boðið og það kemur með einhvern einstakling (sem það hefur ekki áhuga á) af gagnstæðu kyni með sér, þannig að "venjulegt" fólk geti jafnvel hitt annað "venjulegt" fólk.
Þarf eitthvað að útfæra þetta og skella í framkvæmd..... yrði ekki e-h fyllerísdæmi heldur bara kannski frá 9 til miðnættis??