Gleðileg jól

Ég er komin í jólafrí og vá hvað það er frábært!
í gær fórum við yndislegi skólahópurinn minn (sjá mynd) á fund með kennurunum til að fá mat á Greenpeace verkefninu. Upphaflega átti fundurinn að vera klukkutími en þegar við mættum þá var það fyrsta sem kennararnir sögðu að þeir hefðu í rauninni ekki mikið að segja við okkur, við hefðum staðið okkur mjög vel, bæði ritgerðin og heimasíðan væru framar því sem þeir væntu á fyrstu önn.
Við vorum að sjálfsögðu alveg himinlifandi með þetta og notuðum tímann í að spyrja að ýmsu og fá mat á þessu og hinu sem okkur langaði að vita.
Ég fer í próf 12 janúar og um að gera að nota fríið í að læra og búa til eitthvað skemmtilegt fyrir prófið...
Þessi jól verða mjög skrítin, veðráttan er náttlega fáránleg, spáð sólskini um helgina og eitthvað fram í næstu viku.... ég verð hjá systu og familý sem er náttlega æðislegt en skrítið að hafa ekki mömmu og co.
Sem betur fer koma þau nú og eyða með okkur áramótunum...get ekki beðið eftir að knúsa þau vel og mikið.
Ég veit ekki hvað ég á eftir að nenna að blogga svona um hátíðarnar, um að gera að setja aðeins tærnar uppí loft og njóta lífsins.
Ég bjó til smá jólakort.. ekki annað hægt en að prófa að flasha það og hafa gaman að... kíkið á það hérna.
Mér líður og gengur alveg rosalega vel hérna í nýju borginni minni, þótt hugurinn leiti óneitanlega heim og þá sérstaklega undir það síðasta þar sem ég á fólk heima sem hefur ekki verið með heilsu uppá það besta... ég hugsa hlýtt til þeirra á hverjum degi og reyni að senda þeim mína allra bestu strauma.
Hafið það gott saman um hátíðarnar elsku vinir og verið góð hvert við annað.