Lykt dagsins...
Vaknaði í morgun með risastóra hlussu ógeðis kónguló hangandi í einu horninu hjá mér.
Ég snaraði mér framúr og skellti mér í 66 gráðu peysu utan yfir náttfötin, sótti mér vettlinga til öryggis og náði í rafmagns-tennisspaðann, því næst klifraði ég uppá stól þar sem ég náði með spaðanum í kvikindið.. svo grillaði hana svo þar til hún var orðin að brunarúst...
....og svo aðeins meira svo hún myndi örugglega ekki hafa kraft í að kalla á kóngulóavinkonur sínar.
Eftir þetta rugl er ekki hægt að segja annað en að íbúðin mín hafi lyktað af grillaðri kónguló...ég fór í skólann, heimsókn til Lilju sis eftir skóla og þegar ég kom heim var ennþá lykt af grillaðri kónguló... ekkert annað að gera en að skella poppi í örbylgjuofninn og brenna það.
Núna er lykt af grillaðri kónguló og brenndu poppi...
...hver vill koma í heimsókn?