Varúð langloka framundan...
Þá eru skvísurnar mættar í bæinn og ekki vandræðalaust.
Svanhildur lenti rétt eftir hádegi í gær og ég náði að kíkja uppá völl og taka á móti henni beint úr skólanum.. við kíktum svo á strikið og röltum þar fram og tilbaka þangað til að fæturnar voru að detta af okkur.... svo kíktum við við hjá Lilju sys á leiðinni heim.
Eftir smá misskilning á flugtímanum hjá Guðnýju systur þá lenti hún loksins seint í gærkvöldi og þar sem við Svanhildur vorum komnar heim til mín dauðþreyttar, þá skellti hún sér bara í lestina og við ákváðum að hitta hana á lestarstöðinni sem er hérna rétt hjá mér.
Þegar maður labbar frá kollegíinu mínu út á lestarstöð þá labbar maður milli lítils verslunarkjarna og 14 hæða blokkar, sem er allt í gúddí en getur stundum verið svoldið dimmt og spúkí, þar sem við vorum tvær þá röltum við þessa leið. Á undan okkur gengur maður sem er að fara inn með hundinn sinn eftir göngutúr, ég segi við Svanhildi að ég voni nú að þetta sé ekki ógeðslegi dópistakallinn sem ég hef séð sparka í hundinn sinn...
Ég er varla búin að sleppa orðinu... eða bara alls ekkert búin að klára setninguna þegar við heyrum sársaukavæl koma af svölunum á fyrstu hæð.... fyrst eitt sem skerst inn í heilann og hjartað á okkur, við snarstoppum og lítum upp, þar stendur dópistinn á svölunum í myrkrinu, með sem okkur sýnist vera stór steinn og er að lemja hundinn sinn og aftur...
Hundurinn vælir og vælir en við þriðja þunga höggið er þagnar hann alveg....
.....við stöndum þarna fyrir neðan og ég öskra á manninn hvað í andskotanum hann er að gera!! Hann svarar að það sé ekkert problem.. og að við ættum ekkert að skipta okkur af!!
Við skjálfum báðar af hræðslu, bæði við hvað gaurinn gerir næst og bara út af sjokki... þannig við færum okkur úr augnsýn skjálfandi og ég hringi á lögguna, þar sem þetta er ótrúlega stór blokk þá varð ég samt að hafa íbúðina í augnsýn svo ég gæti bent löggunni á íbúðina þegar hún kæmi.
Við ákveðum að Svanhildur stökkvi síðasta spölinn útá lestarstöð að sækja Guðnýju og ég bíði á meðan og tali við lögguna..... þegar ég er búin að hringja og biðja þá að koma heyri ég eitthvern vera að koma neðan úr kjallaranum á blokkinni, ég kalla til Svanhildar að bíða aðeins eftir mér, hún stansar og ég rýni í myrkrið hvort ég sjái hver sé að koma.... þá sé ég mann hlaupa í áttina að mér, ég sný mér við á punktinum og tek til fótanna í áttina að Svanhildi, svo hlaupum við báðar eins hratt og við getum í átt að lestarstöðinni og með manninn hlaupandi og gargandi á eftir okkur....
Þegar við náum í gegnum undirgöngin og upp á lestarstöð er þar enginn nema ein kona og Guðný sem stendur og bíður, þar fóru þá áformin um það að hlaupa í átt að margmenni og engin staður eftir til þess að hlaupa á nema eitthvert út í myrkrið ... við snúum okkur við og þar kemur gaurinn fyrir hornið með síma í hendinni og kallar á okkur að bíða!! hann sé með lögguna í símanum.
Kom þá á daginn að þetta var nágranni sem hafði séð það sama og við og vildi að við myndum bera með sér vitni um hvað hefði gerst.... frábært hjá honum að hlaupa á eftir okkur eins og geðsjúkur raðmorðingi.
Ég get ekki líst því í orðum hversu glöð ég var... ég hélt í alvörunni að endalokin mín yrðu að verða barin í klessu af einhverju dópistafífli....
En leið og beið og loksins kom lögreglan á staðinn... segi nú ekki annað en á miðað við viðbragsflýtinn hjá þeim þá var eins gott að maður var ekki í stórhættu...
Þar sem bæði ég og hinn nágranninn vildum ekki að gaurinn sæi okkur (það er víst einungis sekt við því að berja hundinn sinn til dauða) þá bentum við löggumönnunum á íbúðina hjá geðsjúklingnum, gáfum upp nöfnin okkar og síma, forðuðum okkur svo heim til okkar.
Þarf víst ekki að taka það fram en ég svaf ekki vel í nótt... hundamorð og barsmíðar í mínum draumum... Okkur skvísunum líður nú samt betur í dag og erum búnar að fara út að viðra okkur og reyna að gleyma þessum ósköpum.