

Fínasta veður í dag, þannig að við Peter tókum okkur frí frá lærdómnum og skelltum okkur í heimsókn til tengdamömmu á Solrød strand.
Fyrsta skipti sem ég hitti hana og ég held ég hafi bara staðið mig ágætlega, allavega henti hún mér ekkert út, gaf mér te og köku og leyfði mér að fara á klósettið hjá sér... á meðan ég var á klósettinu sagði hún við Peter að ég talaði fína dönsku... :)
Eftir þetta kíktum við svo í göngutúr á ströndina sem er þarna í 5 mínútna fjarlægð og þaðan eru myndir dagsins.
Vona að allir hafi notið Pinse... og áfram með smjörið, þessi vefsíða kódar sig ekki sjálf.