]]>

« Home | 10.júlí 2007 » | Það er smá réttlæti í þessum heimi.Bíl hundamisno... » | Ég er alveg brjáluð.. » | Fødselsdag og Skt. Hans » | Bæjumbadum___________________ fin » | Holiday...celebrate :) » | We Are Scissor Sisters... And So Are You » | Zulu Rocks » | Jolene's birthday :) » | Hvaða rugl er þetta ? »

Saturday, July 14, 2007

Lørdag til lykke......já eða þannig sko

Meget intressant síðasta vikan í mínu lífi... er búin að fá smjörþefinn af því að vinna í dönsku samfélagi og boy oh boy hvað allt er skipulagt.

Ég var svo heppin að sá sem sér venjulega um að þjálfa nýtt starfsfólk var í sumarfríi þannig að ég fékk konu sem er búin að vinna þarna heillengi og er svona pínu meira líbó og fór ekki alveg eftir starfsþjálfunarreglunum þannig að ég fékk að setja sjálf póst í póstkassa þessa vikuna alveg án hjálpar.

Annars líst mér bara vel á þetta, fólkið á pósthúsinu er hresst, góður mórall og ekkert smá hressandi að hjóla um Hvidovre sem er mér til mikillar undrunar alveg gullfallegur bær... bara spurning að opna augun :)

Svo er bara skemmtilegt hjá mér framundan, í kvöld ætlum við Peter að ferja, (já eða halda uppá) 6 mánuði saman, á miðvikudag koma mamma og Guðni til Köben og líka á miðvikudaginn á Svanhildur mín afmæli... stórt afmæli meira að segja :)

Vona að þið eigið góða helgi...
....passið ykkur á póstkassapöddunum og munið eftir að vera með hundakex í vasanum.... nei djók það er ég.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|