]]>

« Home | Skilaboð til Rósu Gunnarsdóttur » | Alala - CSS » | Emilie 7 år » | Skoli, nördar og gestir :) » | Decisions decisions... » | slik eller ballade??? » | Setti heimsmet i afþyðingum innanhuss :) Allt a l... » | shit... » | Viva La Musica... eða eitthvað svoleiðis » | CSS - Alcohol »

Wednesday, December 05, 2007


Ég náði að kíkja upp frá lokaverkefninu nóg lengi til að klára óskalista fyrir dönsku fjölskylduna mína, þetta verkefni er búið að liggja á mér í dágóðann tíma núna og ég er víst síðust að skila inn.

Það sko er ekki verið neitt í því að kaupa eitthvað bara af því maður er að hugsa til einhvers í fjölskyldunni og fannst það passa vel... nei óskalisti takk fyrir.
Ég hef nú aldrei verið neitt góð í því að biðja um hluti og með hverjum einasta staf sem ég skrifaði niður á listann heyrði ég púka á öxlinni á mér öskra: HEIMTUFREKJA!

Þannig að ég passaði mig vel og vandlega að skrifa bara niður gjafakort í þessum og hinum búðum og ekkert sem fór mikið yfir tvöhundruð kallinn... týpísk svo er það örugglega þannig að kæróinn minn fer líka eftir þessum lista og ég fæ gjafakort í H&M frá honum í jólagjöf... shit... æj ég tryggði mig svo sem með að skrifa að númer átta á listanum var skór, folald, hús, bíll, íbúð og demantshringur... vona bara að hann velji lið númer átta.

Anywho, hérna er ein sæt skvísa sem var líka að skrifa óskalista fyrir ári síðan og pabbi hennar sem er Flash snillingur og bjó til jólakort úr því...tjékkit át!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|