Vondir dagar :(
| Gærdagurinn var líklega einn sá versti sem ég hef upplifað í langan tíma, það gekk einhvern vegin allt á afturfótunum.... þurfti að rífast og skammast í vinnunni allan daginn, festist í lyftunni og námskeiðið sem ég átti að fara á í Danmörku næstu mánaðarmót var aflýst, sótti um varanámskeið og því var líka aflýst í gær. Í nótt dreymdi mig svo að kötturinn minn beit mig í olnbogann og vildi ekki sleppa, svo bjó ég í pínulitlu herbergi með Jasmín frænku og Lilju systur því restin af familíunni hennar var farin til DK.... herbergið var heima hjá múttu og ég var að reyna að finna mig til, til þess að fara í vinnu, var í sturtu ...þá var ég allt í einu komin í baðkarið uppí Foldahrauni, teygði mig í sjampóið sem reyndist svo vera myglað og svo brotnaði sturtuhausinn þannig að ég gat ekki skolað myglaða sjampóið úr..... Ég held ég sé komin með paranoiu að dagurinn í dag verði jafnslæmur og gærdagurinn......hann byrjaði allavega ekki vel, ég fæ synjun á kortið mitt í 10/11 áðan, fer í hraðbanka og þar segir bankinn að ég eigi enga peninga, ég kem uppí vinnu og fer á heimabankann....nóg af pening þar.....ja aldrei nóg en allavega fyrir kókómjólkinni minni sem var skilað aftur með skít og skömm inní mjólkurkæli. Bú hú....ég held ég ætti að fara heim og leggja mig. |