]]>

« Home | Þetta er nú eitthvað bull! » | Hversu gaman væri það ef að stjórnendur fyrirtækis... » | Elín Plús » | Í fréttum er það helst... » | Vont & gott » | Af hverju lærir maður aldrei? » | Kóngsins Köbenhavn » | Ef einhver... » | Jæja þá er litla fjölskyldan flogin til Danmerkur... » | Kitlið »

Saturday, November 19, 2005

Klukkan þrjú...


Frábært kvöld, kíkti a mömmu eftir vinnu og eldaði kjúklingasúpuna góðu fyrir gamla settið og Söndru, alltaf jafn gott að koma heim til mömmu :)

Fór svo með Söndru í bíó á Exorcism of Emily Rose, ég hélt reyndar að sú mynd væri algjört bull en hafði rangt fyrir mér, þetta var bara miklu betri mynd en ég hélt.
Aumingjans Sandra mín var að pissa á sig af hræðslu á leiðinni heim, klukkan er núna um 02:30 og í myndinni gerist ýmisslegt klukkan 03:00 á nóttunni og ég er svo illa innrætt að ég er alvarlega að íhuga að hringja í Söndru á mínutunni þrjú til þess að hræða greyið.... get víst ekki látið verða af því vegna þess að ég þarf hreinlega á þeim systrum að halda sem ég á eftir hérna í borginni fyrst Lilja er flutt....ha ha... en það er MJÖG freistandi.

Mér finnst alveg svakalega gaman að horfa á hrollvekjur og ég er nú yfirleitt ekkert rosalega hrædd eftir á nema ef í myndinni sé eitthvað sem ég gæti alveg imyndað mér að gæti möööögulega gerst fyrir mig, eins og t.d Saw eftir að ég horfði á hana þá bjóst ég alveg eins við því að vakna í baðkari hvenær sem ég fór að sofa.

Annars finnst mér þetta topic sem fjallað er um í Emily Rose myndinni svakalega spennandi, svona dulspeki, andsetningar osfrv. Mig langar eiginlega bara að fara að grafast fyrir um hvað ég ég fundið um alvöru persónuna Anneliese Michel, sem myndin er byggð á og kynna mér þetta betur.... kannski er ég bara klikkuð og ætti að drífa mig uppí áður en klukkan slær 3!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|