Vont & gott
Mikið svakalega er ég sammála Jóni Gnarr í bakþönkunum á Fréttablaðinu í gær.
Hórkarl Íslands sem er titlaður sem piparsveinn okkar íslendinga er eitt langversta sjónvarpsefni sem hefur verið framleitt... ég sá smá brot í gær þegar hann fór að heimsækja fjölskyldur skvísanna og það er bara ekkert gott hægt að segja um þennan þátt, ég faldi mig hálfpartinn bakvið fjarstýringuna... svona eins og þegar ég horfi á falda myndavél þá finn ég svo til með aumingjans fólkinu.
Ástarfleyið er svo nú ekki mikið betra, 5 káetur og 10 þáttakendur, þannig að fólk er bókstaflega látið sofa saman, því annars verðuru bara að sofa úti á dekki...
Sem betur fer er til gott íslenskt sjónvarpsefni eins og Stelpurnar og Silvía Nótt sem ég get alveg grenjað úr hlátri yfir, Ágústa stelpan sem leikur hana hlýtur að vera besta leikkona sem ég hef séð, hún getur meira að segja látið Heiðar snyrti og Pál Óskar roðna og líða óþægilega, skoðanakönnunin hjá henni í gær var alveg brilliant! Þess vegna langar mig til að hvetja alla til að kíkja á tilnefningarnar fyrir Edduna og kjósa Silvíu sem sjónvarpskonu og skemmtiþátt ársins, hún á það sko þvílíkt skilið!
Að lokum... TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN GUÐNÝ STELLA!
Hlakka til að sjá þig á Íslandi fljótlega, knús og kossar!