Matarboð í 101

Ég segi það alls ekki nógu oft en ég er rosalega heppin með fjölskyldu og þá sérstaklega heppin með móður, fósturpabba og systkini, bæði þau sem eru blóðtengd mér og þau sem ég eignaðist þegar mamma kynntist fósturpabba mínum.....
Í gær var ég með smá matarboð fyrir Lilju systur mína og fjölskyldu hennar, þau eru á leiðinni til Danmerkur næsta miðvikudag og ætla að búa þar ef allt gengur að óskum í nokkur ár... ég er strax farin að sakna þeirra, þó svo að það verði rosa gaman að heimsækja þau til Köben.

Isss...slaufur eru fyrir stelpur, Óliver borðar bara skrúfupasta!

Jasmín búin með allt spínatið sitt... vöðvar byrjaðir að myndast!