Hljóðbylgjur ' 05

Ég er búin að vera í smá airwaves/vinnu pásu.... en ég ætla nú ekki að klikka á því að koma með report eftir airwaves sko.... ó nei!
Þetta var bara ein besta vika lífs míns... ég sá alveg svakalega mikið af góðum böndum og er búin að stækka uppáhaldslistann minn svakalega.
Ég get ekki valið á milli hvaða kvöld var skemmtilegast eða hvaða tónleikar voru bestir, en af þeim erlendu böndum sem ég sá þá standa einna helst uppúr (í engri sérstakri röð):
Bob Volume
New Radio
Juliette & the Licks
Junior Senior
Epo-555
The Rushes
The Zutons
Mikið var af íslenskum böndum, og því það var svo svakalega mikið í boði þá reyndi ég að fara frekar á tónleika með hljómsveitum sem ég hafði ekki séð áður, þó svo ég hefði fegin viljað fara á Hoffman, Jan Mayen og fleiri þá var bara ekki tími til þess... VaGínurnar komu mér á óvart, bara slatta góðar miðað við reynsluleysi... Dikta ætla ég að fylgjast með og reyna að fara á tónleika með aftur sem fyrst.... Ég varð svo sem ekkert fyrir neinum vonbrigðum með útlensku böndin því ég bjóst kannski ekkert endilega við neinu af flestum sem ég þekkti ekkert til, kannski skugginn á Junior Senior tónleikunum var hvað Þórunn Antonía var pissfull, valt nánast um sviðið og lét eins og fífl....hún fékk að syngja eitt sólólag og klúðraði því rækilega...
Foghorns pissuðu á sig með einstaklega leiðinlegum tónleikum og Viking Giant show var hálfgerður moodkiller, ef Heiðar hefði nú skipt yfir í rafmagnsgítar aðeins fyrr þá hefði hann getað bjargað þessu, en í staðin spilaði hann e-h 5 róleg trúbbalög og tvö fjörlög sem næstum björguðu showinu, en dugðu ekki til.
Eitt kvöldið endaði með dansi fram á nótt með undirspili Jagúar sem er alltaf gaman... ég allavega er mjög sátt eftir hátíðina, bara svekkt að hátíðin sé ekki í mánuð eða lengur, þó svo að þreytan hafi farið að segja mikið til sín undir lokin og flestir í airwaves hópnum mínum hættir að tala rétt...
Einu sinni ætlaði ég að "nota perðina og fissa"
...annað skiptið sagðist ég sko ekki vera einhver þjóðverskur bakpokari!
Svo vorum við stödd á Gauknum eitt kvöldið Svanhildur heldur á dagskránni og ég spyr hvað sé í (Þjóðleikhús) kjallaranum þá segir, já það eru klósett þar!
Ég birti svo myndir frá skemmtuninni ef ég skildi einhvern tíman lenda fyrir framan tölvu heima hjá mér