]]>

« Home | Til hamingju með daginn elsku dúllan mín!bjóða svo... » | Sjáiði bara... » | Það má ekki pissa bakvið skurð. » | Nælonsokkar » | Jæja þá er maður mættur aftur á klakann og ég skul... » | Áfram Silvía » | Það er alltaf eitthvað.Loksins loksins ætlar vinna... » | Flýtararnir » | Föstudagsfréttin... » | Ég er í tilvistakreppu »

Sunday, February 26, 2006

Nostalgía

Oooh ég man þegar ég var ung og ástfangin í fyrsta sinn...

Ég sakna þess... ekki stráksins sem ég var þá ástfangin af, heldur tilfinninganna sem maður gat fundið fyrir á þeim tíma.
Ég held að sá tími sé búinn, ég týndi rós-rauðu-gleraugun mínum einhvers staðar á leiðinni að tuttugu og sex ára aldrinum, og ég vil fá þau aftur!

Ég stend sjálfa mig að því að hugsa þegar ég frétti af nýjum samböndum vinkvenna minna.. "Æj hvað það verður leiðinlegt þegar þau hætta saman"

Mig langar ekkert til þess að hugsa svona, ég vildi frekar að ég væri saklaus (lesist vitlaus) eins og ég var í gamla daga og hafði trú á öllu og öllum.
Það endaði reyndar alltaf í gífurlegri ástasorg og vitleysu að það kannski borgar sig ekkert og ég ætti líklega að vera ánægð með að vera orðin svona jaded ??


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|