Það er alltaf eitthvað.
Loksins loksins ætlar vinnan mín að senda mig til Danmerkur að kíkja á fabrikkurnar og fá smá "kennslu". Ég get reyndar alveg vel skilið að þeir hafi ekki viljað senda mig út á námskeið fyrir byrjendur.
Það kallast víst ekki að vera byrjandi að vera búin að teikna innréttingar í uþb. 7 ár....jah með hléum.
Við erum bara tvö að fara frá Íslandi á námskeið sem er algjörlega búið til fyrir okkur lengra komna (hinn er búinn að vera í bransanum í 11 ár eða álíka) það hefur greinilega ekki verið þörf á svona námskeiði áður þar sem hver heilvita maður vinnur ekkert við þetta í meira en ca.2ár...
Ég fékk stundarskránna í dag og næsta miðvikudagskvöld verð ég í keilu á móti Norskum sölumönnum... jíha!
Ég er nú ekkert búin að vera sérstaklega dugleg undanfarið að kíkja hérna inn, en ég er nú að reyna að vinna upp aukafríið sem ég tek mér útí í Danmörku.
Maður á auðvitað ekkert sumarfrí svona á lausu þegar maður skiptir um vinnu einu sinni á ári, ég fór einmitt að pæla í þessu um daginn, það er alltaf verið að hrósa fólki sem hefur unnið á sama vinnustaðnum í 20 ár... nokkuð sem ég get engan vegin skilið.
Er ekki skemmtilegra að prófa sem mest á þessum fá árum sem maður á hérna á jörðinni? eða er það meira gefandi að vera nógu mikið á sama staðnum með sama fólkinu gerandi sömu hlutina í 20 ár???
Það er líklega mismunandi hvað fólki finnst mikilvægt og skemmtilegt...en tuttugu ár eru 7300 dagar!
Jæja heim að þvo og fara yfir innkaupalistann fyrir Lilju systir :)