]]>

« Home | Mótmæli » | Það er ekki laust við að mér hafi sárnað svolítið... » | Bubbly & Glimmer » | Áramót » | Next up..... New Years! » | Gleðileg jól! » | Já annað í fréttum, ég fór í Smáralindina í gær og... » | Spýta er ekki bara spýta » | Jóla jóla jóla... » | Voðalega er erfitt að vera svona full/þunn í vinnu... »

Friday, January 13, 2006

Föstudagurinn þrettándi.


Rosalega getur manni fundist sumt fólk vera "ógnvekjandi" eða þannig að maður vill segja og gera allt rétt fyrir það.

Ég var einmitt hjá augnlækni áðan og var farin að píra augun til að sjá eitthvað sem ég sé ekkert svo honum fyndist ég nú hafa staðist "prófið"!
Og þegar hann er að prófa sjónskekkjuna og segir "hvort er betra, þetta eða svona?" þá er hann með svona lítið gler sem hann snýr fyrir framan augun á manni, þá hugsaði ég alltaf "úff hvort svarið ætli sé rétt???"
Augnlæknirinn minn er alveg frábær kall, lítill og mjór, ef við lentum í slag þá myndi ég örugglega vinna, en samt finnst mér ég einhvern vegin verða að þóknast honum þegar ég fer í augnrannsókn.... skrítið. Verð að ná prófinu, vil ekki vera failure... ég veit ekki hvað þetta er eiginlega.

Annars er nú ekkert svakalegt í 101 fréttum þessa dagana, það snjóar þar eins og annars staðar, þannig að kannski er bara komin tími á að búa til snjókall númer 2 í garðinum.
Mamma var að lenda í Köben og fær nú loksins að knúsa snúllurnar sínar og eyða nokkrum dögum með frumburðinum, ég aftur á móti fékk bíl á sumardekkjum að láni á meðan og ábyrgð á unglingnum.... já eða kannski meira svona í djóki, hún er væntanlega himinlifandi að vera ein heima.

Jæja ég ætla að fara og bóka mér næsta flug til Köben... fer á námskeið þar með vinnunni í febrúar og er búin að telja yfirmanninn minn á að leyfa mér að bóka nokkra daga fyrir mig fyrir og eftir svo ég geti heimsókn litlu dönsku fjölskylduna.

Góða helgi gott fólk.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|