Gleðileg jól!
Frábær Þorláksmessa að baki.
Ég gerði algjörlega ekki neitt í vinnunni, við elduðum mat i sýningarsalnum og sátum svo öll saman og borðuðum, pökkuðum inn síðustu jólagjöfunum, eltum uppi fólk sem var á leiðinni í Herjólf til að koma síðustu gjöfinni til eyja, tókum persónuleikapróf á netinu og slúðruðum allan daginn.
Eftir vinnu kíkti ég svo á laugarveginn og við Svanhildur fengum okkur að borða....
En þetta blogg er nú eiginlega jólakortið frá mér til ykkar, þannig að ég segi bara gleðileg jól allir saman og ég vona að þið hafið það rosalega gott um jólin.
Farið varlega í pakkana í kvöld og gefið ykkar nánustu knús og kossa og ekki gleyma að láta þá vita hvað ykkur þykir vænt um þá..... maður segir það alltof sjaldan!