]]>

« Home | Rockstar! » | Hmmmm..... » | Varúð pirrings blogg! » | Köben köben » | æji bara fyndið! » | Óliver Skorri 2.ára :) » | Fjör á Kvíabryggju... » | Fokk ég er búin að þríbóka mig annað kvöld!Oftast ... » | Klukkan þrjú... » | Þetta er nú eitthvað bull! »

Friday, December 16, 2005

Rónar og rokkstjörnur


Ég er með rosalega flott hár og lít björtum augum til helgarinnar... ég get svo svarið það að ég er næstum sannfærð um að það verði fjör hjá mér.
Ég ætla að byrja á tónleikum í kvöld með Hjálmum, Mugison og Trabant og á morgun ætla ég og skemmtinefndin mín í vinnunni að halda jólagleði.

Svo er ég líka búin að ákveða að leiða hjá mér öll leiðindi í vinnunni og skella framan í þá sem ætla að vera með skæting að nú sé hátíð ljóss og friðar að ganga í garð þannig að þeir verða bara að halda sig á jólamottunni!

.....en talandi um jólin þá var ansi furðuleg frétt á forsíðu Fréttablaðsins í morgun,um manninn sem býr í Öskjuhlíðinni í kúlutjaldi og ætlar að ylja sér við sprittkertahlýju um jólin.
Þvílíkt og annað eins húmbúkk hef ég ekki lesið lengi, mér er skapi næst að skreppa uppí Öskjuhlíð og biðja manninn að hætta þessum andskotans aumingjaskap!
Hann er með 85. þús á mánuði, búin að hafna hjálp frá börnunum sínum og vælir svo yfir því að fá ekki úthlutaðri íbúð hjá örorkufólkinu (man ekki hvað félagið heitir)
Eina vandamál þessa manns er að hann er fyllibytta og dópisti, það eru margir sem hafa minni peninga á milli handanna og hafa það af.
Er ekki hægt að skutla kallinum í meðferð??? Hvað kostar að fara í meðferð?

Borgar maður það sjálfur?


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|