Varúð pirrings blogg!

Ég hata hata hata strætó!
....og ég hata nýja strætókerfið og ég hata þann sem ákvað að hætta að selja strætómiða og kort á Lækjartorgi því í morgun var ég 37 mínútum of sein í vinnuna út af honum, var það eitthvað tilkynnt í blöðunum að maður gæti ekki lengur keypt sér kort á Lækjartorgi?
Ég var á bíl í hálft ár og síðan þá hefur þetta helvítis strætókerfi farið ennþá meira til fjandans heldur en það var.... af hverju í ósköpunum þarf að vera svona erfitt að treysta á þessar fjárans almenningsamgöngur á þessu skítalandi?
Ætli það sé af því að 90% af íslendingum eru alltof andskoti snobbaðir til þess að fara í strætó og kaupa sér þess heldur 4 jeppa og 2 fólksbíla á hvert heimili?!?
...og þess vegna er engum peningum eytt í almenningsamgöngur...???
....ég er komin með leið á strætó eftir aðeins 3 daga og ég er komin með ennþá meiri leið á fólki sem spyr mig, "af hverju kaupiru þér ekki bara bíl?"
Mér langar ekkert í neinn helvítis bíl.