Köben köben

Jú jú ég er komin heim frá DK... er nú samt enn þar í huganum :)
Svo tók það mig líka bara nokkra daga til þess að losna við bjórvömbina svo ég næði í lyklaborðið...hí hí hí
Taskan hennar Svanhildar er nú reynar ekki ennþá búin að skila sér heim, Iceland express náði að týna henni á þessari löngu leið til Köben með svona þeim fötum sem hún notaði mest, nýjum skóm, öllum jólagjöfunum frá Söndru systir og hangikjötinu hennar Lilju sis osfrv.
Ég rétt slapp við yfirvigtina með því að taka með mér frekar þungan bakpoka í handfarangur á leiðinni heim, á leiðinni út var ég aftur á móti tekin í tollinum með stórhættulega jólagjöf frá móður minni og þurfti að hangsa á meðan að nokkrir tollarar potuðu varlega í hana og rifu í pappírinn en ákváðu svo loks að hún væri ekki banvæn.
Það var bara gaman úti og ég sakna litlu snúllanna minna gífurlega, enda einstaklega gaman að fá að sofa í koju og vera vakin af Jasmín með pot í kinn...
Kíkið í albúmið þar sem ég er búin að setja inn nokkrar Köben myndir, þess má einmitt geta að ef ég hefði ekki verið búin að kaupa jólagjöfina hennar Rósu þá hefði ég keypt handa henni "beljustandinn".