]]>

« Home | Jóla jóla jóla... » | Voðalega er erfitt að vera svona full/þunn í vinnu... » | Rónar og rokkstjörnur » | Rockstar! » | Hmmmm..... » | Varúð pirrings blogg! » | Köben köben » | æji bara fyndið! » | Óliver Skorri 2.ára :) » | Fjör á Kvíabryggju... »

Thursday, December 22, 2005

Spýta er ekki bara spýta




Ég kíkti út að borða í gær og fyrir aftan mig sátu tvenn hjón á sitthvoru borðinu að borða þegar annar maðurinn segir við hinn "fyrirgefðu kannast ég ekki eitthvað við þig?" þeir byrja að spjalla eitthvað um hvaðan þeir eru og komast að því að þeir eru báðir úr Kópavogi...sem skiptir svo sem engu máli fyrir þetta blogg en mér datt í hug að þið hefðuð áhuga á að vita það.

Anywho þá fara þeir að tala um við hvað þeir vinna, annar er múrari og hinn vinnur í byggingavöruverslun og eru þeir búnir að vera í þessum bransa í mörg ár, þeir halda áfram að kjafta og konur þeirra sitja þegjandi og brosa til hvor annarar svona eiginkonubrosi, svona eins og þegar menn fara að tala um flugelda eða fótbolta,
og svona korteri seinna eru mennirnir enn að tala um verktaka og hvað er að gerast á byggingarmarkaðnum þegar ég átta mig á að ég er að hlusta á annarra manna samræður (þeir töluðu hátt þar sem þeir sátu ekki við sama borð) og hef í alvörunni áhuga og skoðun á öllu því sem þeir eru að segja, langaði meira að segja oft til þess að grípa inní og leiðrétta þá.


Ég vildi að ég væri hárgreiðslukona.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|