Bubbly & Glimmer
Ég held ég gæti sko alveg tekið að mér að vera völva fyrir vikuna, ég var búin að spá því að ég myndi byrja nýja árið með því að vera hrikalega þunn og það stóðst gjörsamlega....
....reyndar hafði ég nú loksins vitlaust fyrir mér með áramótatjúttið, ég bjóst alveg við því að það yrði algert flopp sem það var bara alls ekki...
Fjörið byrjaði nú eiginlega á föstudaginn hjá okkur þrem skyttunum og að sjálfsögðu gerðum við það sem góðum íslendingum sæmir, buðum veglausum útlendingum í áramótapartý!
Mamma og Guðni fengu loksins sína fyrstu tengdadóttur í mat, Sandra reyndi það sem hún gat að búa til íssósu (sjá myndir), við pissuðum næstum því í okkur yfir best of þætti Stelpnanna en hlógum nú kannski ekki alveg jafn mikið yfir skaupinu, ég var nú samt alveg ánægð að sjá Silvíuna mína þar.
Eftir mat var svo brunað niðrí bæ og horft á flugeldana hjá Hallgrímskirkju og í partý heima sem stóð til klukkan 5.... ((aumingja efri hæðin hefur þurft að sofa með eyrnatappa, eins og í mörgum sing star partýum))
Svo var kvöldið endað á KB eins og svo oft áður...
Takk fyrir mig allir sem mættu í partý...frábært kvöld með frábæru fólki!
Og gleðilegt tvöþúsund og sex þið fáu sem nennið að kíkja hérna inn.
Hérna má svo sjá það sem tókst að taka af myndum ef einhver vill kíkja :)