Next up..... New Years!

...jólin voru svoldið svona.
Ég keypti þvottavél í dag, þannig að jólin eru greinilega búin!
tryllitækið er 1400 snúninga, með fuzzy logic, ljósabretti og froðuskynjara... bara svona fyrir ykkur sem hafið sérstakan áhuga á þvottavélum.
En það er augljóst ég er orðin fullorðin því það er bara fullorðið fólk sem kaupir þvottavélar.
Ég get reyndar notað þá afsökun að ég var í raun að kaupa þvottavélina fyrir hana Svanhildi, ég bara borga þar sem ég vinn nú á stað sem selur þvottavélar.
En þetta er þá þvottavél númer tvö sem Svanhildur á og það hlýtur að segja okkur greinilega hversu eldgömul hún er orðin!
Ég held þessi lífsreynsla hefði verið ennþá ömurlegri en hún var ef vélin hefði í alvöru verið fyrir mig sjálfa....
Annars eru áramótapælingarnar á fullu, hvar á að vera?, hvert á að fara?, í hverju á að vera? hversu mikið glimmer er nógu mikið?????
Ég lofa mér því á hverju ári að vera ekki of spennt því áramótadjammið er venjulega algjör anticlimax en ég ræð bara ekki við mig, ég finn spennuna magnast innra með mér og ég veit ég á eftir að enda eins og alla 1. janúar, vonsvikin því væntingarnar voru svo svakalegar...
Til að bjarga áramótunum þá er eiginlega aðalspurningin:
Hver er með símanúmerið hjá Tarantino???