Svimandi gleði

Aumingjans starfsfólkið á stöð 2!
Ég las í Fréttablaðinu í morgun að þeir þurfa að spóla áfram um rúmlega 2 ár í Bold & the Beautiful vegna höfundarétta á tónlist. Get rétt ímyndað mér símtölin sem þjónustuverið á eftir að fá. Patrick Duffy og Lorenzo Lamas verða nýjar persónur og ætti það nú kannski að kæta einhverjar húsmæðurnar.
Það er nú lítið í 101 fréttum þessa dagana, eða kannski er það bara að ég er búin að búa innan um stjörnurnar svo lengi að ég er hætt að taka eftir þeim.
Það kannski breytist í Köben, þá get ég komið með allt það nýjasta af Kim Larsen og félögum.
Annars er þetta eitthvað voðalega skrítinn dagur, ég held ég gæti mögulega verið með djammfráhvörf þar sem ég kíkti ekkert á lífið um helgina.
Í morgun þegar ég vaknaði þá svimaði mér svo svakalega að ég komst ekki út úr húsi á mínum vanalega tíma.... svo er ég hálfpartinn búin labba meðfram veggjum til að detta ekki í gólfið í dag, frekar skrítið, ég man ekki eftir því að hafa svimað svona bláedrú áður....
.........en það stoppar mann ekki í að klára 12 tímana í vinnunni!
Ég á ekki eftir að sakna þessarar vinnugeðveiki