]]>

« Home | Auglýsi eftir ýtara! » | Hátíðir og krútt » | Ólympíugrín » | Hausinn á mér » | Ég á ekkert nema afmæli » | Matarboð 101 » | Þá er komið að því.... » | Piparsveinar og bílbátar » | Stjörnuspá dagsins... » | Coward of the county! »

Friday, March 17, 2006

Reykjavík - ljótust í heimi?


Í gærmorgun þegar ég vaknaði las ég Blaðið, ég geri það nú ekki venjulega þar sem Fréttablaðið er my poison, en aðilinn sem ber út í götunni minni er eitthvað að klikka og FB kemur núna bara ca. einu sinni í viku.
Meira segja fékk ég ekki Birtuna mína í morgun, sem þýðir að ég veit ekkert hvað er í sjónvarpinu og ég veit ekki hvernig vikan verður þar sem mig vantar Birtuspánna mína!

En það sem ég las í Blaðinu vakti athygli mína, það var viðtal við Guðjón Bjarnason arkitekt, sem ég hef aðeins kynnst í gegnum vinnuna mína.
Forsögnin á viðtalinu er " Stjórnmálamenn hafa eyðilagt Reykjavík"

Ég hef ekki talið Reykjavík vera ljóta borg og þá sérstaklega ekki miðbæinn, mér finnst gamli bærinn afskaplega heillandi og flottur og hvergi annars staðar á höfuðborgarsvæðinu betra að búa en í 101.

Hins vegar hef ég undanfarin ár verið að velta því fyrir mér hvort að hver sem er geti skellt teikningum inn til byggingarnefndar og fengið þær samþykktar? Og ekki nóg með það heldur virðist ekki skipta máli hvers kona hús þú ert að byggja, þú matt bara planta því hvar sem er, hvort sem það fellur inní umhverfið eða ekki.

Besta dæmið um þetta er fyrirhuguð bygging milli Smáralindar og Smáratorgs, 22 hæða ljótur speglaglerturn sem á að vera hæsta bygging á Íslandi og eins og mér sýnist teikningarnar líta út þá verður þetta líka ljótasta hús borgarinnar, fellur alls ekki inní umhverfið, samsvarar typpabyggingunni sem við köllum Smáralind engan veginn og gerir ekkert fyrir Smáratorgið (sem er umhverfisslys útaf fyrir sig)

Ætli það sé rétt hjá Guðjóni að stjórnmálamenn séu í meirihluta í skipulagsnefnd Reykjavíkur? Hefur arkitektum eða fólki með fagurfræðilega menntun verið bolað þar út?

Mín skoðun er sú að við erum að byggja svo hratt að það virðist engin hafa neina heildarsýn yfir hvernig borgin okkar á eftir að líta út eftir nokkur ár, enda virðist fólk ekki einu sinni kippa sér upp við það að þurfa að horfa á byggingarkrana í hvaða átt sem er, og búa við hliðina á þeim í marga mánuði ef ekki ár, þannig að kannski sér fólk ekki einu sinni hvað er að gerast í kringum það, eða er bara alveg sama.

Það er sagt að 70% af öllum byggingarkrönum í heiminum séu í Kína.
Ég var með danskan kollega í heimsókn í vikunni sem staðfestir það að hin 30% séu staðsettir á Íslandi.

Ef einhver hefur komist svo langt að lesa hingað, þá mögulega hefurðu líka áhuga á þessu.

Góða helgi gott fólk.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|