]]>

« Home | Er einhver heima? » | Nostalgía » | Til hamingju með daginn elsku dúllan mín!bjóða svo... » | Sjáiði bara... » | Það má ekki pissa bakvið skurð. » | Nælonsokkar » | Jæja þá er maður mættur aftur á klakann og ég skul... » | Áfram Silvía » | Það er alltaf eitthvað.Loksins loksins ætlar vinna... » | Flýtararnir »

Wednesday, March 01, 2006

Coward of the county!

Af hverju ætli köngulær hafi ekki verið hannaðar bleikar?

Ég er sjúklega hrædd við köngulær en ég er nokkuð viss um að ég væri ekki hrædd við þær ef þær væru aðeins "sætari".
Svoldið svona eins og fiðrildin, þau eru ekkert nema ógeðslegar pöddur í dulargervi, en það er engin* hræddur við þau af því þau eru með svo fallega vængi.

Ég skil reyndar með lærnar sem geta drepið mann að það væri ekki mjög praktískt að hafa þær voða krúttlegar, en þessar venjulegu sem hreiðra um sig heima hjá mér og gera mér svo sem ekkert nema að hræða úr mér líftóruna... þær mættu alveg vera bleikar.

Ok kannski ekki bleikar... ég myndi alveg sætta mig við gular eða ljósbláar..


En lag dagsins er Coward of the county með Kenny Rogers því það kom mér í gott skap og ég var alveg komin með leið á þessum degi að hádegi.... það er líka viðeigandi því ég er köngulóargunga sýslunnar.... já eða eitthvað.


*nema Lilja systir mín sem er hrædd við allt sem flýgur.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|