]]>

« Home | Nostalgía » | Til hamingju með daginn elsku dúllan mín!bjóða svo... » | Sjáiði bara... » | Það má ekki pissa bakvið skurð. » | Nælonsokkar » | Jæja þá er maður mættur aftur á klakann og ég skul... » | Áfram Silvía » | Það er alltaf eitthvað.Loksins loksins ætlar vinna... » | Flýtararnir » | Föstudagsfréttin... »

Tuesday, February 28, 2006

Er einhver heima?

Ég lærði nýtt orð um daginn...
Það er orðið skrulla, ég veit ekki hvernig það er skrifað nákvæmlega en það þýðir eins konar ljóska á norsku. Þetta er ekkert móðgandi orð, svona eiginlega bara notað um konur/stelpur þegar þær eru utan við sig og gera eitthvað kjánalegt.

Sumar konur eru fæddar skrullur, það er bara eins og það sé engin heima!
Ég á alveg mín skrullu-móment, og hún Svanhildur vinkona mín á sín... alveg eiginlega miklu fleiri en ég :p

Saman eigum við örugglega milljón svona móment...
Á sunnudaginn þá löbbum við útí sjoppu að skila vidjóspólum, litla frænka hennar var í heimsókn og hún kom með okkur, þegar við komum svo aftur heim þá stöndum við fyrir utan útidyrahurðina og horfum á hvor aðra... og segjum báðar í kór "hva ætlaru ekki að opna?"
Við höfðum þá hvorugar tekið með okkur lykla, Svanhildur segir þá:
"jæja ekki málið lánaðu mér símann þinn og við hringjum í Sigrúnu systir og biðjum hana að koma með lyklana"
... "en ég tók ekki með mér símann, ert þú ekki með þinn?"

Neibb hvorug okkar með síma heldur, en ég vissi samt nákvæmlega hvar minn var ofan á ísskáp! Við enduðum á að fá lánaðan símann hjá litlu frænkunni sem átti ekki inneign og senda SOS sms í systir hennar Svanhildar! aular....

Í gær sátum við svo uppí sófa og fundum einhverja skrítna lykt, svona rafmagnsbrunafýlu... Upphófst mikil leit að lyktinni og þegar við vorum búnar að þefa af hvor annari, báðum fartölvunum, öllum fjarstýringunum og kettinum þá gáfumst við upp... og komumst aldrei að því hvaðan lyktin kom.

töff töff töff...

..annars er nú ekkert merkilegt í 101 fréttum þessa dagana en mig langar að biðja hundinn sem skítur alltaf á eftstu tröppuna hjá mér að hætta því!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|