]]>

« Home | Þá er komið að því.... » | Piparsveinar og bílbátar » | Stjörnuspá dagsins... » | Coward of the county! » | Er einhver heima? » | Nostalgía » | Til hamingju með daginn elsku dúllan mín!bjóða svo... » | Sjáiði bara... » | Það má ekki pissa bakvið skurð. » | Nælonsokkar »

Saturday, March 04, 2006

Matarboð 101


Fokk helvítis !
ég eyddi færslunni sem ég var búin að skrifa but here it goes again...


Ef manni vantar eitthvað þá á maður bara að fara á Laugarveginn, ég er búin að þræða kringluna og smáralindina í þeirri veiku von að finna mér kjól, fyrir árshátíðina sem er um næstu helgi, með engum árangri. Meira segja leitaði ég á strikinu í dk án árangurs (já nema Valentino kjólinn sem kostaði 40 þúsund og var æði, en ekki þess virði miðað við að ég á bara eftir að nota hann ca. þrisvar)

En í dag fann ég kjólinn.
Rokk og rósir klikka ekki! Laugarvegurinn klikkar ekki!

Æðislegt að labba um miðbæinn óþunn og skella sér í bröns á Vegó, í dag var Vegó fullt og eftir að hafa kíkt þangað inn tvisvar í von um að fá borð þá gáfumst við Svanhildur upp og kíktum í bröns á Óliver... sem við hefðum betur látið vera því á disknum mínum var skinka og ostur í sneiðum.
OSTUR Í SNEIÐUM!
Manngreyið sem tók diskana okkar og spurði "did you enjoy your meal" fékk augnaráð frá okkur sem sagði honum að hypja sig og spurja ekkert meira um þetta.

En í brönsinu fengum við þá snilldarhugmynd að fyrst ég væri að fara að elda í kvöld þá gætum við alveg eins haldið matarboð, þannig að við drógum upp símana og sendum sms á alla í skránni.
...og ég þarf víst að fara að hypja mig inní eldhús og elda og ég veit ekki einu sinni fyrir hvað marga. En það ætti víst ekki að verða vandamál þar sem ég elda alltaf fyrir alltof marga hvort sem er... þannig að ef þú ert að lesa þetta og ert svöng/svangur þá er matur um 8 leytið.


Skrullumóment helgarinnar á Svanhildur sem hringdi í símaskránna í gær og bað um símann hjá 118.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|