]]>

« Home | Stjörnuspá dagsins... » | Coward of the county! » | Er einhver heima? » | Nostalgía » | Til hamingju með daginn elsku dúllan mín!bjóða svo... » | Sjáiði bara... » | Það má ekki pissa bakvið skurð. » | Nælonsokkar » | Jæja þá er maður mættur aftur á klakann og ég skul... » | Áfram Silvía »

Friday, March 03, 2006

Piparsveinar og bílbátar

Ég var að glápa með öðru auganu á Bachelorinn í gær því ég vildi vita hvað manninum gekk til að keyra með deitið sitt útí sjó eins og sást í auglýsingunni.
Kom ekki bara í ljós að sportbílinn sem hann keyrði breyttist í bát!

Skvísan búin að eyða sjö tímum í að blása á sér hárið og endaði svo rennandi blaut útí sjó, en hún var samt svona "good sport" og reyndi að brosa í gegnum tárin og frizzy hárið og vera voða glöð með bílbátinn.

Ég hugsaði einmitt að það væri alveg hentugt að eiga svona bílbát, ég gæti skroppið útí eyjar þegar mig langaði og þyrfti engar áhyggjur að hafa að panta far í tíma fyrir þjóðhátíð.
En hvað það hefur nú samt lítið gerst í þessum bílamálum, áttu þeir ekki allir að svífa árið 2000? er það alveg off?


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|