Better than sex

Helvíti var skemmtileg mynd á rúv í gærkvöldi.
Brjálæðislega raunveruleg um one night stand sem stendur yfir í 3 sólarhringa. Fólkið var algjörlega raunverulegt.
Stelpan með alvöru brjóst, þau þurftu bæði að fara úr fötunum áður en þau gátu gert það, fengu það ekkert endilega á sama tíma osfrv...
Ástæðan gæti verið að þetta var ekki amerísk della.
Virðist neblilega vera að fólk utan við Ameríku sætti sig alveg við að sjá "ljótt" eða jafnvel venjulegt fólk í sjónvarpi.
Shocking!
Við Svanhildur byrjuðum fyrsta áfangann í að skipta eignum í gærkvöldi.
Það fór allt mjög friðsamlega fram, við byrjuðum á að skipta tónlistarsafninu okkar sem hefur einhvern veginn orðið samvaxið á undanförnum árum... rauðvínið sem við sötruðum hjálpaði mikið til og við kláruðum um þriðjung... ætli það séu ekki svona tveir sólarhringar eftir.....svo dvd, vidjósafnið og bækurnar.
Held okkur kvíði mest fyrir því að skipta kettinum, það gæti orðið blóðugt.