What to do, what to do.

Ég hef aldrei vitað hvað maður á að gera við sumardaginn fyrsta.
Það er ekki að það sé ekki nóg að gera í dag, mér meira að segja datt í hug í gær að fara í eitthvað af þessum ferðum sem boðið var upp á í ferðalangablaðinu, til dæmis hvalaskoðun eða útsýnisflug, gallinn við það bæði er að það kostar og ég er í svö ströngu spariátaki að ég tími ekki einni krónu í eitthvað sem ég get verið án (já og sígaretturnar þurfa að hverfa ég veit).
Ég gæti líka farið út í garð og hjálpað Svanhildi við að taka til í garðinum, klippa tré og eitthvað vesen, en þar sem ég hef hvorki áhuga á því að fá mold undir neglurnar eða skordýr í hárið þá sit ég bara inní stofu með tölvuna í fanginu og veiti henni andlegann stuðning í gegnum rúðuna.
Í dag ætla ég þó að hjálpa til við að stytta þeim stundir sem nenna ekki út fyrir hússins dyr og finnst best að fagna sumrinu úr sófanum sínum.
Ég er forfallinn netfíkill og skoða margar netsíður og les bloggsíður hjá fólki sem ég þekki barasta alls ekki, ég hef fundið margt skemmtilegt og á tíðum stórfurðulegt, með því að flakka frá linki til links, oftar en ekki er ég komin einhvert út í rass og man ekkert hvernig ég komst þangað eða hvar ég byrjaði.
Hér eru nokkrar af þeim síðum sem ég hef lent inná undanfarið ef einhverjum leiðist…
Blogg manns sem virðist vera giftur, en skrifar skemmtilega um framhjáhald, drykkju og annað vesen. Svo er hann líka með mail order brides of the week og velur sínar uppáhalds.
Sumir þurfa bara að losna við hluti, það getur gerst fyrir besta fólk að það sitji uppi með hluti sem henta ekki.
HNT þýðir Half Nekkid Thursday og virðist vera frekar stórt fyrirbæri í bloggheiminum, fólk sem sagt póstar myndir af sér eða öðrum half nekkid, þe. ekki nakið heldur kannski bara mynd af stóru tánni á sér, öxlinni, enninu eða slíkt. Að sjálfsögðu er líka fólk sem birtir bara myndir af brjóstunum á sér og e-h svoleiðis en að mestu leyti er þetta bara fyndið og flestar þær síður sem ég villtist inná voru rosalega amerískar.
Hérna er hægt að lesa meira um þetta ef einhver hefur áhuga.
Þessi gella er ólétt og maðurinn hennar veit ekki að hún bloggar, en hún bloggar aðallega um kynlífið þeirra og póstar svo HNT myndir af sér.
Fatagagnrýnir fræga fólksins, tekur að sér að pósta myndir af frægu fólki á frumsýningum og svo framvegis og gera lítið úr því hvernig það klæðir sig… skemmtilega tilgangslaust.
Þessi gaur býr með óléttu fyrrverandi kærustunni sinni, hún vill ekkert með barnið hafa og ætlaði að flytja út um leið og hún væri búin að fæða….
(Núna er hún víst búin að eiga og ætlar að vera e-h áfram, en gaurinn missti víst af fæðingunni því hann fór út í smók.
Þetta er svo eitt af þeim bloggum sem ég skil ekkert í, er nú samt svoldið fyndið.
Gaur með skemmtilegt blogg, póstar samt sjaldan.
Craigslist – Missed connections.
Fólk sem birtir smáauglýsingar um einhvern sem það mætti en talaði ekki við, vonast svo til þess að sá hinn sami hafi tekið eftir þeim líka og hafi samband.
Hef ekki hugmynd um hvað þetta er? Einhver með alltof mikinn tíma og ekkert líf.
Tilgangslausasta blogg ever, gaur sem tekur mynd af sér á hverjum degi.
Þessi er bara skrítin.
Hérna er hægt að hanga á Habba Hotel, eiginlega eins og Sims online.
Vonandi funduð þið eitthvað betra að gera við fyrsta sumardaginn heldur en ég.
Gleðilegt sumar!