Have your cake and eat it
Hér eftir verður bara mojito bragð af topp með lime-bragði.
Mér varð á að fá mér svoleiðis í glas áðan og frussaði því jafnhratt út úr mér, ég er kannski ekki alveg í besta standi í dag og ég þarf EKKI meira áfengi það sem eftir er.... eða allavega fram að páskum.
Skemmtilegur dagur í gær sem saman stóð af gæsapartý fyrir hana Beggu vinkonu mína, fermingarveisla hjá Ágústi bróður mínum og svo meira gæsapartý Beggu.

Skemmtiatriði í veislur og partý... ekki málið! bjallið bara í mig og ég klár í að dansa línudans fyrir ykkur, við skelltum okkur á námskeið með gæsinni og það var svona líka þrusufjör, eins og þetta er nú hallærislegt... næst ætla ég að fara í afró og svo kannski magadans og eitthvað meira dansi, það er bara rosalega gaman að dansa, mundi nú reyndar í gær af hverju ég lagði dansinn ekki fyrir mig.
Gæsapartýið var það rólegasta sem ég hef farið í, reyndist eitthvað erfitt að fylla gæsina, en það fór nú allt vel að lokum og hún endaði uppá sviði að dansa fugladansinn með Pöpunum.
Ef einhver vill köku þá er restin af typpinu inní ísskáp.