]]>

« Home | TGIF » | Who let the dogs out, part II » | Who let the dogs out? » | Samtal mitt við Guð. » | Don't get it twisted! » | The baby weekend! » | Ég er farin heim í Herjólfsdalinn.... » | No pressure, no diamonds. » | Enn ein fermingarveisla í dag... » | I rule »

Monday, May 15, 2006

Hús vikunnar




Í hverri viku fer ég í óvissuferð í hádeginu með vinnufélaga mínum, við skiptumst á að skipuleggja ferðina aðra hverja viku og við köllum þessar ferðir okkar "hús vikunnar".
Við veljum einhvern stað eða byggingu sem okkur langar að heimsækja og skoða. Okkur finnst þetta einstaklega skemmtilegt því við höfum brennandi áhuga á hönnun, heimsækjum gömul og ný hús, sýningar og jafnvel bara einhvern skemmtilegan blett sem hægt er að setjast á og borða nesti.

Ég er mjög hlynnt því að fólk skoði umhverfi sitt því oft verður maður samdauna því og gleymir að horfa á það með augum túristans. Einhvern veginn geri ég ekkert nema að vera með "alvöru" útlendinga í för, þá drattast ég af stað og skellir mér í lónið eða gullna hringinn.

Í dag skelltum við okkur í Hafnarhúsið á útskrifarsýningu Listaháskólans, ég hef farið undanfarin ár á útskriftarsýningarnar hjá þeim og þær eru alltaf skemmtilegar, í dag keypti ég mér disk á sýningunni með íslensku clip arti! Snilldarhugmynd!!! Tækifærismyndir frá íslenskum rauðveruleika.
Myndirnar sem fylgja þessu bloggi koma af disknum og eru eftir Sól Hrafnsdóttur.

Hérna er hægt að skoða fleiri verk eftir hana og samstarfsfélaga hennar.




Að öðru þá er hún Silvía mín að brillera í útlandinu eins og við var að búast, kíkið á síðuna hennar og byrjið að hlakka til fimmtudagsins... ég get ekki beðið!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|