]]>

« Home | 90 sentimetra hamingja. » | Verur og Hórur » | Prinsinn minn Ef þið fílið Prince, skellið ykkur ... » | Bullshit mán..þriðjudagur. » | Ég er farin á tónleika............. Haf... » | Bréfið... » | Varkárni eða Móðursýki? » | Strætófrelsarinn. » | bare tanken om det..... » | Sulten »

Wednesday, June 14, 2006

Pandora's box

Ég vinn í gullfiskabúri... þegar það er hlýtt úti þá er steikjandi hiti inní á skrifstofu hjá mér, helst get ég þá ekki verið í meira en nærfötum, og þegar það er kalt þá þarf ég hitablásara til að frjósa ekki föst við lyklaborðið.

Í dag er einn af þessum köldu dögum þannig að ég bauðst til þess að hita kakó fyrir strákana mína sem ég vinn með í morgun. Þegar ég kem svo með kakóið spyr annar þeirra mig í djóki hvort ég eigi ekki piparkökur með því..... jú jú ég átti náttlega piparkökur,(þær voru afgangs síðan í starfsmannajólagleði)svo ég hendi boxinu í hann.

4 tímum seinna... hann fékk sér eina og ég er nánast búin með fjandans boxið!
..og við erum að tala um 2 kíló af piparkökum og mér finnst piparkökur ekki einu sinni það góðar..... svo er líka JÚNÍ, í venjulegu landi væri ég að borða vatnsmelónu.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|