]]>

« Home | Strætófrelsarinn. » | bare tanken om det..... » | Sulten » | Kagerulle. » | 101 fréttir » | Undertøj » | Suomi monstersball » | Frábær komment frá Sigmari júrókynni í gær.* "Sill... » | Skilaboð. » | Vaskemaskine »

Monday, May 29, 2006

Varkárni eða Móðursýki?


Einhver sagði einhvern tímann að common sense væri bara ekkert svo common og ég held að sá hafi haft rétt fyrir sér.
Ég reyni allavega að nota það common sens sem ég hef eins mikið og ég get.

Ég hef verið hugsa svoldið um hvernig ég á eftir að spjara mig í útlandinu, ég er náttlega bara smáborgari frá eyjum þannig að stórborgir gætu verið hættulegar fyrir vitleysinga eins og mig.
Ég man til dæmis alltaf eftir því þegar ég fór til New York í fyrsta skipti, ég gat ekki hætt að stara á manninn í subwayinum sem hélt á "blóðugum" bréfpoka og mig langaði svo að spyrja hann hvort ég mætti kíkja í pokann en sá innfæddi sem ég var með á flakkinu í NY bannaði mér það...

Það er nú samt ýmislegt sem ég geri óafvitandi eða hef vanið mig á að gera til að passa uppá mig og mitt. Flest af þessu hef ég örugglega pikkað upp úr sjónvarpinu

*Ég er alltaf búin að finna lyklana mína áður en ég kem að útidyrahurðinni ef ég er ein á leið heim svo ég komist inn fljótt og örugglega ef einhver væri að elta.
(Já ok líka af því mér er alltaf mál að pissa þegar ég nálgast útidyrahurðina.)

*Ef ég er að keyra ein að næturlagi er ég alltaf með læstar bílhurðir.

*Ef ég er ein í lestum eða strætóum á kvöldin eða næturna þá sest ég alltaf í sætið fjær glugganum svo enginn geti sest við hliðina á mér.

Og það móðursjúkasta sem ég geri, og hef alltaf gert frá því ég man eftir mér, er að þar sem ég á heima eða þar sem ég gisti er ég yfirleitt búin að velja mér vopn!

Já ég veit BILUN!

Þá meina ég að ég er búin að spotta út þyngsta hlutinn eða eitthvað í hverju herbergi sem ég gæti gripið til ef ég þyrfti að verja mig….
Þetta var sérstaklega auðvelt þegar ég bjó ennþá hjá mömmu því kristalsskálarnar hennar eru svo þungar, að það var pain in the arse að þurrka af, og augljós kostur að kasta í einhvern sem ætti það skilið.
Hins vegar síðan ég byrjaði að búa er þetta öllu flóknara þar sem að Ikea virðist ekki framleiða neitt yfir 200grömmum.

....enn þann dag í dag langar mig sjúklega að vita hvað var í "blóðuga" bréfpokanum!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|