]]>

« Home | Suomi monstersball » | Frábær komment frá Sigmari júrókynni í gær.* "Sill... » | Skilaboð. » | Vaskemaskine » | Hús vikunnar » | TGIF » | Who let the dogs out, part II » | Who let the dogs out? » | Samtal mitt við Guð. » | Don't get it twisted! »

Wednesday, May 24, 2006

Undertøj


Ég þoli ekki þetta litla pjátur sem undirfataframleiðendur setja á nærfötin mín!

Það virðist ekki vera hægt fyrir mig sem fullorðna manneskju að fara í búð og kaupa mér nærföt án þess að þurfa svo að fara heim og klippa af óteljandi borða, slaufur og rósir sem einhverjum asnanum finnst smart að hafa á milli brjóstanna á mér eða framan á nærbuxunum mínum.
Ég skil alveg með miðana inní fötunum sem ég er stanslaust að klippa úr, þeir innihalda allskonar upplýsingar sem ég þarf að vita, hvernig á að þvo flíkina, hvaða stærð hún er osfrv. en slaufa framan á nærbuxum er það ekki bara svoldið fimm ára?

Ég er viss um að þeim sem datt í hug að þetta væri flott á fullorðnum datt líka þetta í hug.

Best að skella sér á tjúttið með brjósthaldaratöskuna, eins gott að vera ekki í AA, kæmir ekki bæði gemsanum og lyklunum með.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|