Kagerulle.
Ég var dottandi yfir mínum kvöldlega bloggrúnti þegar einhver frábær einstaklingur ákvað að parkera fyrir framan svefnherbergisgluggann minn.
Ok ekki málið vinur þú mátt leggja þar, en geturu lækkað í Bubba?
Akkúrat núna er einhver fyrir utan gluggann minn með Bubba á fullu blasti og eins og það sé ekki nógu slæmt þá flautar sá hinn sami á 2 mínútna fresti!
FLAUTAR! klukkan er 01:13 í miðju íbúðahverfi!!!!!
Ég er að gera það upp við mig hvort ég eigi að setja koddann yfir hausinn og vona að ég fái nægt súrefni til að vakna í fyrramálið eða ætti ég að fara út og segja dólgnum til syndanna?
Djöfull er ég orðin gömul að láta svona hluti pirra mig, en sem betur fer ekki það gömul að ég eigi kökukefli að taka með mér út...
ps. eruði að taka eftir titlunum mínum? maður verður að æfa dönskuna ;)