]]>

« Home | The Ultimate Sensetive Alpha Male Take Charge Man! » | UPDEIT » | It lies in the eyes upstairs. » | Helvíti verður gaman á miðnætti 5.júlí .... fyrsti... » | LETI » | Fögnum 19.júní! Ég verð í bleiku ... » | Fornyelse » | Hæ Hó Jibbí » | Pandora's box » | 90 sentimetra hamingja. »

Monday, June 26, 2006

Stóra ljóta blokkin mín



There you go.... í þessari stóru og ljótu blokk ætla ég að búa í vetur og kannski næstu tvö árin ef eitthvað er varið í þetta.
Ég var að googla þennan stað um daginn og þá fann ég síðu hjá íslenskri stelpu sem á heima á sömu slóðum, á síðunni hennar stóð mér til mikillar mæðu:

"Hvidovre, Garðabær Kaupmannahafnar"

Ég er að fara að flytja í fokkings Garðabæ!
Ég hef varla komið í Garðabæ á Íslandi, mest óáhugaverði staður sem ég veit um, hefur einhver aksjúalli stoppað í Garðabæ án þess að eiga brýnt erindi?



Svona lítur svo herbergið mitt út, ég á ekkert eldhús nema með hinum krökkunum í stóru ljótu blokkinni, en það er allt í góðu, því ég ætla mér að sitja í sameiginlega eldhúsinu og stökkva á fyrsta danann sem ég finn í stóru ljótu blokkinni og láta hann/hana verða vin minn og kenna mér dönsku.... og já "draga" mig í partý.

Svo er ég búin að reikna það út að það geta komið 7 manns í heimsókn í einu ef við sofum í flatsæng og engin er yfir tveim metrum og 90 kílóum... 14 ef allir sofa á hlið og 23 ef allir sofa í fósturstellingunni.
Byrja að taka við pöntunum bráðlega.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|