]]>

« Home | Læri læri tækifæri.... » | If your gonna spew, spew in to this! » | Helgin... » | HALLÓ HEIMUR! » | I frettum er thetta helst... » | FOKKIT » | Sá mann í lestinni í morgun, hann var í bol sem s... » | Panic » | Dugnaður » | Fína hjólið mitt. Óliver ... »

Thursday, October 19, 2006

Elín to the rescue

Í nótt bjargaði ég Ameríku.

Ég man ekki alveg af hverju en það náðist myndband af mér vera að fljúga í gegnum byggingar, hangandi á á keðju sem var föst við risastóran krana.
Ég vissi eitthvað um forsetann og þurfti að koma honum frá völdum, þetta sprang mitt sannaði algjörlega að forsetinn var óhæfur í starfi...

...þegar ég var búin að spranga þurfti ég að fara að að fela myndbandið af mér spranga, það birtist í hendinni á mér strax og ég lenti, á minnislykli by the by.

Ég hljóp og hljóp um margar byggingar á flótta frá sérsveitarmönnum forsetans.... ég vissi að ég þurfti að birta þetta myndaband STRAX á YouTube!
....Samt verð ég að viðurkenna að ég var pínu tvístígandi með þetta því að CNN og BBC voru að berjast um réttinn á þessu myndbandi og vildu borga mér milljónir... og þá meina ég margar....ég man ég hugsaði að ég ætlaði að kaupa handa mömmu hús í Köben og flytja hana út.

Samviskan sagði mér að ég yrði að birta þetta á virtum fréttamiðli eins og YouTube gegn engu gjaldi, það væri það eina rétta í stöðunni.

Þarna vaknaði ég.... og af þessum draumi er bara hægt að læra eina lexíu!

ALDREI að horfa á 24 rétt fyrir háttinn.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|