HALLÓ HEIMUR!

I´m baaaaaack.....
Takk allir sem vildu hjálpa mér í tölvuveseninu en eins og guð sagði alltaf þá hjálpar hann bara þeim sem hjálpa sér sjálfir og ég hjálpaði mér sjálf alla leið útí búð að kaupa eina svona fína
Sló þessu svo uppí kæruleysi og skellti mér á Ipodda í leiðinni... ég hef ákveðið að gleyma hinni elskunni minni bara alfarið... en þar sem ég er ótrúleg löt manneskja þá var ég náttlega ekki búin að bakka upp allt draslið mitt... sem þýðir að myndir og tónlist osfrv. er horfið...
...óska þess vegna eftir að góðhjarta lesendur skelli á mig myndum og minningum til að fortíðin mín sé ekki gjörsamlega útþurrkuð.
Spurning hvort einhver annar en ég var með myndavél í kveðjupartýinu mínu???
(Ég veit að Svanhildur getur reddað mér nánast öllu öðru)
jæja þá er að halda áfram að koma þessari bjútí í stand með skype, msn og the whole sjíbang!
Skelli líka svo inn nokkrum nýjum linkum hérna til hliðar á skólafólkið mitt sem er allt svo skemmtilegt :D