]]>

« Home | Síðasta blogg var lygi, ég sakna Íslands! » | Verkefni dagsins... » | Photoshop » | Fredagsbarinn » | Hor hor hor hor hor » | Sá fyrsti... » | Brandvæsenið » | Denmarks next top model » | Pííínulitla kotið mitt. » | Help we are sinking! »

Monday, September 11, 2006

Svona er það...


Já heldur betur nóg að gera hérna megin við tjörnina.

Photoshop-verkefnið gekk rosalega vel, við fengum fína dóma frá kennurunum og þetta var mjög skemmtilegur dagur....fólk lagði mismikið í "básinn" sinn en flestir með skemmtilegar hugmyndir þó að budgetið hafi verið núll krónur. Ég fer nú vonandi að hafa tíma til að skella inn myndum í albúmið.

Um kvöldið á föstudag var svo partý í skólanum, við fórum nokkrir bekkjarfélagarnir út að borða um kvöldið áður en við fórum í partýið, við vælum nú öll yfir því að vera fátæk en lifum svo eins og kóngar..he he... Partýið var nú frekar lame, skemmtilegt fólk og ódýr bjór en eitthvað skelfilegt furðufataþema þannig að þetta leit allt út fyrir að vera hálf menntaskólalegt... oh well.. ég skemmti mér þó frábærlega þótt ég hafi komið heim frekar snemma.

Á laugardag bauð svo skólafélagi minn mér með sér í vinnuna, hann er ljósmyndari og er að vinna núna á hátíð sem er búin að vera í gangi í allt sumar hér í Köben.
Við fórum á sýningu sem heitir Groupe acrobatique de tanger frábær sýning og ég fékk að vera alveg fremst þannig að ég sá alveg svakalega vel...myndi mæla með henni en finnst líklegt að engin komist....he he

Núna er ég svo að búa til fyrstu heimasíðuna mína frá grunni og skrifa öll kódin sjálf..helvíti gaman.. það er að opnast fyrir mér algjörlega nýr heimur.

Vona að þið hafið það öll gott...ég er lítið inn á msn þessa dagana, ég hef bara svo mikið að gera að ég næ varla að tala við mömmu mína :)

Annars er það nýjasta í fréttum úr Hvidovre að gæjinn á bensínstöðinni er líklega farinn að læra ensku út af mér, hann er neblilega hræddur við mig og dönskuna mína, en sagði við mig áðan með bjagaðri röddu "Hello, how are you?"
Ég er alveg orðin rugluð á þessu tungumálabisnessi, frekar ruglandi að tala þrjú tungumál á hverjum degi... vonast nú samt til að komast á eitthvað dönskunámskeið fljótlega.

....en áfram með HTML-ið!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|