Sá fyrsti...
.... jæja þá er hann afstaðinn fyrsti skóladagurinn, klukkan er að verða ellefu í danaveldi og ég er meira að segja búin að læra heima, þetta litla sem þurfti og aðeins extra for good measure.
Ég byrjaði á því í morgun að hitta Lilju sis úti á lestarstöð og hún fylgdi mér í skólann eins og ungamamma, hún er náttlega búin að vera þarna eina önn þannig að hún kann á þetta stelpan.
Svo var okkur nýnemabúunum smalað saman í einn stóran sal þar sem kennararnir voru með kynningu á sjálfum sér, mjög skemmtilega útfært þannig að maður tók ekkert eftir því hvað þetta tók langan tíma.
Því næst var hópunum skipt niður á dönsku og ensku línuna, en ég er á ensku línunni og það eru um það bil hundrað manns með mér í bekk og geri aðrir betur.
Þar af eru líklega um 10 íslendingar... fyndið ég bjóst nú ekki alveg við svo mörgum, en það skiptir nú ekki öllu máli, ég ætla að leggja mig fram við að kynnast því skemmtilega fólkinu sama hvort það er frá Íslandi eða ekki.
Ég svitnaði eins og hóra á löggustöð mest allan daginn, svona samblanda af því að Danmörk ákvað að vera heitari heldur en í gær þannig að ég ofklæddi mig og líka smá stress að kynna sig og hitta allt þetta nýja fólk.
Dagurinn fór að mestu leyti í að kynnast fólki, skoða skólann og að finna þann hóp sem kennararnir eru búnir að skipa okkur í verkefnin næstu fimm vikurnar... svo á fimmtudag er fyrsta "presentationið" þar sem allir hóparnir kynna sig.
Mér líst bara ofboðslega vel á þetta, hópurinn sem ég er í samanstendur af 8 manns og við vorum bara 4 sem mættum í dag, ég, strákur og stelpa frá Kína og stelpa frá Búlgaríu og svo var bætt við í okkar hóp íslenskri stelpu.
En nú er ég búin að smyrja nestið og læti þannig að það er ekkert annað að gera en
drífa sig í háttinn og tékka á degi 2 á morgun.
:)