BIVA to the rescue!
Verslunarmannahelgin var alveg frábær, ég skrapp í heimsókn til Tinnu og Dadda í Odense og svo fórum við öll ásamt Ögninni þeirra, Rósu, Valla og Viggó í bústað á Jótland.... Takk aftur krakkar ég skemmti mér konunglega :D
Svo þegar ég kom "heim" aftur þá var lagt í leiðangur að klára nú loksins það sem stendur eftir svo ég geti flutt inn í mini íbúðina mína, skellti mér í Ikea til að klára málin og kaupa svefnsófa og það sem til vantaði... en það var auðvitað ekki til lykilstykkið sem mig vantaði til að klára púsluspilið... týpískt, fór líka í símaleiðangur að fá mér nýjan síma og númer en í þriðja skiptið sem ég reyni þá er síminn sem mig langar í ekki til... glataður þriðjudagur og ég fór bara aftur heim til systu með ekkert versl en fullt af peningum!!
Í dag reyndi ég svo bara aftur, var búin að skoða ALLT sem ég gat á netinu og fann búð og sá þar hluti sem mig vantar á fínu verði, fann svo strætóleið þangað og skellti mér í dag... keypti svefnsófa og skenk og fékk mér nýtt símanúmer (síminn er ennþá ekki til)
Þannig að ég fæ góssið á föstudag, fer svo á föstudagstónleika í Tívoli með systu og sef líklega á laugardag í fyrsta skipti í Hvidovre.
Anywho þá er þetta nú bara leiðinlegt updeit blogg, er að vinna í að skella myndum inn en ég kem með eitthvað krassandi von bráðar... td. gæti ég sagt ykkur frá litlu sætu gömlu konunni sem var rænd í kvöld, konunni sem pissaði á sig á leiðinni yfir götuna eða gaurnum sem bauð mér á deit í dag útí strætóskýli en ég verð að halda ykkur á tánum...
....so all in good time my friends ;)
Ég skelli hérna til hliðar inn nýja símanúmerinu mínu og heimilisfangi. Skype fangið mitt er niletur svo endilega addið mér, hringið, sendið póst og pakka... já eða bara farið inn á iceland express og kaupið miða til að koma í heimsókn :)
Síðustu tvær helgarnar í ágúst eru reyndar uppseldar :)
Vííííí ég er að fá gesti.