]]>

« Home | Köbenhavn mit ny hjem! » | Vinir » | Jæja elsku dúllurnar mínar,Þá er brottför að nálg... » | Jeg har ikke noget » | Jæja hvað í fjandanum er í gangi hérna.... mikið v... » | Can I kick it? » | LEGKAKA! » | Tölfræði » | Gasgrills are deadly! » | Útsala - útsala »

Friday, July 28, 2006

Lífið í Köben so far...

.... er búin að vera úti að stússast eitthvað nánast síðan flugvélin lenti... sleikja upp hvern einasta sólargeisla sem ég næ í, enda skortur á þeim heima á klakanum.

Ég er ekki búin að fá herbergið í stóru ljótu blokkinni minni afhent, en fæ það vonandi núna eftir helgina... Á meðan nýt ég þess að gista hjá stóru systur minni, mági og litlu skæruliðunum þeirra.... ég byrja ekki í megrun á meðan ég bý hér, það er alveg víst, enda dekrað við mig í mat og drykk og ég ætla ekki einu sinni að þykjast finnast það leiðinlegt!

Lestarsamgöngurnar hér eru í algerum ólestri þannig að ég er ekki farin að kíkja þangað sem kollegiet er, það er verið að laga eitthverja brautarteina og það á víst að vera búið í næstu viku.... þó er ég búin að fara að skrá mig inn í landið í Hvidovre þar sem ég á eftir að búa.. ég fór í ráðhúsið þar, en það er svo sem ekkert nálægt kollegiet því það er við hliðina á lestarstoppistöðinni í Rodovre en ekki Hvidovre...oh well...
...æj ég er ennþá að finna út úr þessu öllu saman... þetta kemur að lokum...

Á næstu dögum vonast ég til að vera búin að kaupa mér nýjan síma og fá mér danskt númer, þá skelli ég inn öllum upplýsingum hérna á síðuna :)
Það hafa nú ekki verið mikið af myndum teknar so far og þá aðallega bara af krökkunum... ætlaði að láta nokkrar fylgja, en næ ekki að koma þeim inn, veit ekki hvort það er ég eða hitinn eða danska nettengingin en lofa að vera duglegri að taka myndir og blogga þegar ég er orðin smá settluð...

... þangað til.. lifið í lukku en ekki í krukku.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|