Gasgrills are deadly!
Ég er morðingi!
Karma er bitch og ég sný líklega aftur sem frisbídiskur eftir þetta líf.
Í gærkvöldi fór ég út í Leifsstöð að sækja litlu systur mína og kærastann hennar þar sem þau voru að koma heim úr sumarfríinu sínu í Danmörku.
Vélin þeirra átti að lenda um miðnætti og þar sem að Hróarskelda er nýbúin var mökkur af fólki á leið heim frá Danmörku, öll hlaðin tjöldum, svitafýlu og bakpokum... þess vegna þurfti ég að bíða í um það bil klukkutíma eftir að þau gætu fengið töskurnar sínar.... úr varð að ég var komin heim í háttinn rúmlega 2 í nótt.
Þetta var nú ekki alveg það sem ég hefði óskað mér þar sem að fyrsti þátturinn af Rockstar er í kvöld og ég þarf að vaka eitthvað frameftir nóttu til að missa ekki af fjörinu.
Tæplega 7 í morgun rumska ég svo við að það eru einhver læti frammi, ég frekar syfjuð heyri nú ekki alveg hvað er að gerast og átta mig ekki endilega á því að þetta sé ekki bara draumur, þangað til ég heyri Svanhildi öskra:
ARRRRGGGGHHHHHH NEI MOLI!!!!!!!!!!!!!
Ég nennti nú ekki fram úr og snéri mér á hina hliðina, þá sé ég Svanhildi standa við svefnherbergis hurðina hjá mér með fægiskóflu. Ég spyr hana hvað sé að þá segir hún mér að Moli hafi komið inn með fugl og sé undir rúminu hennar að leika sér við hann.
Ég veit að Svanhildur meikar ekki svona þannig að ég vippa mér framúr og fer inní herbergið hennar..... Moli hefur nokkrum sinnum áður veitt fugla og alltaf hefur maður þurft að týna upp fjaðrir og gogga sem hann hefur dreift um stofuna. Sem betur fer höfum við nú sjaldnast verið heima.... En í morgun var kötturinn að leika sér með fugl undir rúmi en fuglinn er LIFANDI
Ég næ að kalla á köttinn til að sýna mér fuglinn, gríp fuglinn af honum með ótrúlegri leikni og sparka kettinum frá með fætinum og kalla hann öllum illum nöfnum.
Eins þjálfaðir sambýlingar og við Svanhildur erum þá grípur hún köttinn og lokar hann inn á baði, ég reyni að kíkja aðeins á litla fuglinn, sem reyndist nú bara vera ungi, og sýnist hann nú í fljótu bragði ekki vera neitt alvarlega slasaður þannig að ég fór með hann út og setti hann á jörðina, hugsandi hvort ég gæti snúið hann úr ef það væri nú eitthvað að honum.
Litla greyið valhoppaði undir gasgrillið, sat svo þar og skalf. Við höldum að hann sé bara hræddur og þori ekki undan því fyrr en að við gefum honum smá speis til að ná sér..... ég ákveð nú samt að tékka hvort að hann sé ekki örugglega í lagi og rúlla grillinu frá, jú hann virðist vera nokkurn veginn í lagi, en hann haltraði aðeins um og annar vængurinn á honum var eitthvað beyglaður.... þannig að ég fór aftur til Svanhildar sem varr í því að halda öðrum köttum í hverfinu frá nýjasta leikfanginu.....segi henni svo að ég sé bara ekki viss hvort það sé í lagi með litla greyið og við ræðum hvort við ættum að skella honum í kassa og fara með hann niðrá Hverfisgötu til dýralæknisins.
Á þessum tímapunkti ákveð ég að kíkja aftur á fuglinn þar sem hann var búinn að koma sér fyrir aftur undir gasgrillinu, ég læðist að og færi grillið snögglega frá.
Asninn sem ég er þá hitti ég ekki betur en það að ég keyri með grillinu yfir fuglinn..... þá lá hann á gangstéttinni og kipptist til, Svanhildur öskrar og ég fer að hágrenja...... ég DRAP fuglinn sem ég var að reyna að bjarga!!
En ég gat nú ekki horft ungann kveljast svona þannig að ég stökk inn og sótti mér viskustykki, með augun full af tárum snéri ég litla greyið úr.
Við hátíðlega athöfn hjá ruslatunnunni fórum við Svanhildur með nokkra sálma og jörðuðum aumingjans fuglinn.... Blessuð sé minning hans.
Smá auglýsing að lokum: Gott heimili óskast fyrir 4ra ára fresskött.