LEGKAKA!
Ég fékk raðmatarfullnægingar í gær... var boðin í mat og þar sátum við matarboðsfélagarnir og kjöftuðum fram eftir kvöldi, rosalega góður matur og ennþá betri félagskapur. Takk fyrir mig bæði.. þið eruð æði!LEGKAKA!
Eftir spjallið kíktum við svo tvær út á lífið, langt síðan að ég hef farið bláedrú á skemmtistaði og skemmt mér svona svakalega vel... ég var nú aðeins að kíkja í einn, tvo bjóra niðrí bæ, en það helvíti skýr að ná að sjá hvað allt þetta skelfilega fulla fólk var hallærislegt....brill gaman að fylgjast með hössl-aðferðum fulla fólksins... en ekkert ógurlega gaman að rassaklípingunum á dansgólfinu.
Nú tekur svo síðasta heila vinnuvikan mín við á morgun, ég er einmitt svo heppin að gaurarnir mínir í deildinni minni eru báðir í sumarfríi þannig að ég hef líklegast nóg að gera og vikan verður fljót að líða... svo fæ ég líka að skúra eftir vinnu alla næstu viku... segi svo að lífið sé ekki spennandi...hí hí.