Help we are sinking!
Hún María vinkona mín kom til Köben í gær og er fyrsti gesturinn minn, æðislega gaman að fá hana og hún er náttlega alveg fullkominn fyrsti gestur þar sem ég hef bara verið hér í örfáar vikur og hún bjó hérna í svoldinn tíma og þekkir þess vegna allt og getur frætt mig um miklu meira en ég nokkurn tíman hana.
Við erum búnar að skemmta okkur alveg frábærlega, kíktum á Bakken í gær, borðuðum þar og fórum hamförum í að reyna að vinna bangsa.... fórum líka í 5 víddarbíó og vorum étnar af hákarli og næstum af slöngu, en við vorum svoldið hræddar, ég aðallega af því María öskraði svo mikið, að við náðum ekki að horfa allan tímann.
Á leiðinni heim þá björguðum við einhverjum aumingjans þjóðverja frá því að vera fastur á Hovebane yfir nótt, hann var of fullur til að hjóla heim, í allan dag er ég búin að vera að hlæja að þessu myndbandi sem fylgir hérna að ofan því hann minnti mig svo á það.... anýways þá skiptumst við á e-mailum því hann vantar einhvern að þekkja í Köben og mig vantar tónleikavin... svo það er aldrei að vita nema þjóðverski Tobias komi eitthvað frekar við sögu hérna á blogginu.
En ég ætla að finna eitthvað sniðugt online albúm til að skella myndum í:)