]]>

« Home | Pííínulitla kotið mitt. » | Help we are sinking! » | Ástin mín eina... » | Góðir og slæmir dagar. » | BIVA sökkar & Gavin "rokkar" » | BIVA to the rescue! » | Nýfarin og allt í rugli??? » | Nokkrar myndir » | Lífið í Köben so far... » | Köbenhavn mit ny hjem! »

Thursday, August 24, 2006

Denmarks next top model

Ég var í strætó í gær á leið til systur minnar þegar inn koma eftirlitsmenn og kona frá samgöngufyrirtækinu.
Þau ganga á línuna og biðja fólk um að sýna að það hafi borgað fyrir farið, þegar kemur að mér þá sýni ég konunni kortið mitt, hún brosir og gengur að næsta manni.

Stuttu seinna kemur hún aftur að mér og spyr mig hvort ljósmyndarinn sem er með henni í eftirlitstúrnum megi taka mynd af okkur saman, ég var einmitt nýbúin að greiða mér og bursta tennurnar þannig að ég segi bara jú jú að hann megi það alveg... næstu tíu mínútur af ferðinni fara svo í alls konar pósur og dramatíska endursýningu á því þegar ég sýndi henni kortið mitt... (djöfulli er ég góð leikkona by the by, ég er alveg á vitlausri hillu....)

Ég náði nú samt ekki alveg hvar hún sagði að myndin myndi birtast, örugglega svona banner eins og eru á hliðinni á strætóum með undirskriftinni:
Husk að betale for din rejse!
Já annað hvort það eða mánaðarlegu fréttabréfi strætóbílstjóra.

Annars gengur allt bara vel hjá mér, ég er að reyna að rembast við að tala sem mesta dönsku, fór með Maríu á tjúttið um síðustu helgi og þá settumst við hjá einhverjum dönskum strákum og töluðum "dönsku" allt kvöldið, ég horfi svoldið á danskar sjónvarpsstöðvar og hlera samtöl hjá ókunnugu fólki í strætó og lestunum.

Ég var einmitt að hlera eitt samtal í dag og ég hugsaði, vá hvað ég er að verða góð í dönsku, ég skil hvert einasta orð!!! Ekkert smá glöð með mig.... þá fattaði ég að þetta voru bara íslendingar....


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|