]]>

« Home | Help we are sinking! » | Ástin mín eina... » | Góðir og slæmir dagar. » | BIVA sökkar & Gavin "rokkar" » | BIVA to the rescue! » | Nýfarin og allt í rugli??? » | Nokkrar myndir » | Lífið í Köben so far... » | Köbenhavn mit ny hjem! » | Vinir »

Sunday, August 20, 2006

Pííínulitla kotið mitt.

Nú er ég nánast búin að koma mér fyrir og hérna koma nokkrar myndir, það er nú reyndar frekar erfitt að taka myndir því þetta er alveg pínu pínu lítið, það vantar takka sem heitir zoom wayyyyy out á myndavélina mína....he he he



Útsýnið úr glugganum mínum



Litla baðherbergið mitt, Kiddi mágur kom og hengdi upp sturtuhengi þannig að nú frussast ekki yfir allt þegar ég baða mig. Það var fyndið þegar hann var að hengja það upp, veggirnir eru náttlega bara úr einföldum A4 blöðum þannig að við Lilja héldum að hann færi inní stofu með hengið.



Hægri hliðin á herberginu, þarna sést skenkurinn sem ég var að vesenast að setja saman um síðustu helgi langt fram á nótt, ég þakkaði guði fyrir Ikea eftir að hafa sett þetta dótarí saman.




Vinstri hliðin, svefnsófinn úr Ikea sem ég endaði á að kaupa eftir mikið vesen, og merkilegt þegar ég var búin að setja hann saman var ekki nema eitt stykki sem gekk af... það var annað en 26 stykkin sem gengu af skenknum.



Skrifborðið sem hann Holger kollegiemaður var svo elskulegur að lána mér, litli gangurinn minn, hurðin til hægri er inn á klósettið og svo er hin fram á gang, einmitt í gegnum þessa bréfalúgu fæ ég öll bréfin frá ykkur :)



Ísskápurinn minn sem ég keypti á kúk og kanil af einhverri stelpu á fjórðu hæð sem var að flytja út, það tók mig 2 daga að mana mig upp í að þrífa hann, ógeðslega skítugur, og ég þurfti að draga hann upp á sjöundu hæð á pappakassa var nú ekki mikil hjálp í þessari stelpurófu á fjórðu hæðinni.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|