]]>

« Home | Hor hor hor hor hor » | Sá fyrsti... » | Brandvæsenið » | Denmarks next top model » | Pííínulitla kotið mitt. » | Help we are sinking! » | Ástin mín eina... » | Góðir og slæmir dagar. » | BIVA sökkar & Gavin "rokkar" » | BIVA to the rescue! »

Sunday, September 03, 2006

Fredagsbarinn

Ég nennti bara ekkert að vera lasin um helgina þannig að ég harkaði bara af mér og skellti mér í skólann á föstudaginn, við byrjuðum líka að læra á photoshop þá þannig að það var eins gott að mæta.

Svo klukkan 2 þegar skólinn var búinn þá byrjaði fredagsbarinn, það er bar sem nemendurnir reka og selja bjór á tíkall til uþb. klukkan 6 um daginn.

Eiginlega bara nauðsynlegt að skella sér á barinn og kynnast nú öllu þessu nýja fólki sem ég hitti í fyrsta skipti bara 5 dögum áður.... við sátum í garðinum og spjölluðum og náðum að kynnast vel og ég skemmti mér alveg konunglega.


Eftir fredagsbarinn ákváðum við nokkur að kíkja út að borða og svo á upphitunartónleikana fyrir Iceland Airwaves þar sem Jeff Who var að spila, ég get ekki annað sagt en að þetta var alveg brilliant kvöld og ég er alveg svakalega ánægð með nýju bekkjarfélaga mína.... frábært fólk.



Ég nenni bara eiginlega ekki að skrifa meira í bili, ég er að vinna í að skella fullt af myndum inní albúm sem hann Kalli vinur minn bjó til fyrir mig og verður það up and running von bráðar.

Nú á morgun tekur svo við photoshop vika hjá mér í skólanum, við verðum í photoshop alla vikuna og seinni part vikunnar þá eigum við international bekkurinn að fara í hópavinnu með danska bekknum og svo á sú vika að enda með partýi skilst mér og það er nú þegar búið að biðja mig um að koma með brennivín (þakka Svanhildi fyrir pelann sem ég á inní frysti ;) þannig að það hlýtur að verða eitthvað stuð úr því...

...till next time.... lifið heil :)


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|