]]>

« Home | Cykelrazzia! » | Pöddulíf » | Svona er það... » | Síðasta blogg var lygi, ég sakna Íslands! » | Verkefni dagsins... » | Photoshop » | Fredagsbarinn » | Hor hor hor hor hor » | Sá fyrsti... » | Brandvæsenið »

Monday, September 18, 2006

Køkkenmøden

Var að koma af eldhúsfundi í sameiginlega eldhúsinu.
Fundarmenn: 5 danir, færeyingur, norðmaður og ég.

Þurfti að byrja á því að útskýra að ég talaði nú ekkert svakalega góða dönsku en ég gæti nú alveg skilið svona flest, þannig að ég var spurð hvort ég vildi hafa fundinn á ensku eða dönsku...
.....14 hatursaugu lágu á mér og öskruðu á mig NÝBÚADJÖFULL!

Þannig að ég sagði "hva, auðvitað höfum við þetta bara á dönsku" alveg ligeglad sko!

Auðvitað töluðu allir svo skuggalega hratt að eg skildi varla rassgat... eða røvhule. Þannig að niðurstaðan á fundinum var einhver, ef ég ætla að nota eldhúsið á ég að borga eitthvaðfirsfjerdsoghalvfems í eldhússkatt, það á held ég að kaupa ný hnífapör, einhver á að vaska gólfið og hætta að geyma einhvern ost í ísskápnum, einhverjum finnst of mikið af auglýsingabæklingum berast.....osfrv.

Ætli ég verði samt ekki að gefa þessu drulluskítugasvínastíu eldhúsi séns þegar þau eru búin að þrífa það svo ég læri kannski dönsku í þessu blessaða landi.... ....ekki get ég lagt meira á gaurinn úti á bensínstöð.

Annars er lítið í fréttum héðan annað en að mér er illt í rassinum, hjólaði eins og vindurinn í dag!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|